ALDIN BIODOME

Eins og aðrir aðstandendur ALDIN Biodome fagna ég þeirri miklu umræðu sem spunnist hefur um vænta uppbyggingu á svæðinu norðan Stekkjarbakka í jaðri Elliðaárdalsins. Uppbyggileg umræða byggir hins vegar á upplýsingum og langar mig að fjalla aðeins um þá starfsemi sem mun fara fram undir þaki ALDIN.

Meginmarkmið ALDIN Biodome er að tengja fólk við náttúruna og stuðla að heilbrigðum lífsstíl, allt á sjálfbæran og arðbæran hátt. Þar verður stunduð ræktun í víðum skilningi þess orðs. Endurnýjanleg orka verður nýtt til matjurtaræktunar og í gróðursælu umhverfi verður boðið upp á aðstöðu til skapandi athafna og mannræktar. Umhverfið á að vekja skilningarvitin til meðvitundar um persónulegt samband manns og náttúru og vekja þannig athygli á því jafnvægi sem nauðsynlegt er í lífinu.

Fræðsla og afslöppun

Aðalstarfsemin mun eiga sér stað undir visthvelfingum sem skiptast í þrjú meginrými. Það fyrsta sem gestir ganga í gegnum er Dalbær sem er garðyrkjurými og torg sem verður að mestu undir torfþaki. Þaðan verður hægt að ganga inn í tvö mismunandi loftslagsstýrð visthvolf, annars vegar Laufás sem verður með Miðjarðarhafsloftslagi og hins vegar Hraunprýði með hitabeltisloftslagi. Á útisvæði ALDIN verður lögð áhersla á samspil náttúrunnar sem fyrir er og nýræktar á plöntum sem falla vel að umhverfinu. Þetta verður gert í samspili við leiksvæði fyrir unga gesti sem og aldna sem vilja njóta útiverunnar.

Í Dalbæ verður lögð áhersla á að gestir upplifi allt ræktunarferli borgarbúskaparins, „af beði á borð“ – fyrsta flokks hollustu og ferskleika. Gestir geta svo keypt og tekið matjurtir með sér heim úr ræktunarrýminu auk grænmetis beint frá öðrum bændum. Á svæðinu verður aðstaða til fræðslu fyrir hópa, veitingastaður og kaffihús, fyrir gesti og þá sem hafa notið útivistar í dalnum.

Í Laufási og Hraunprýði verða matjurtaskógar með stórbrotnu safni plantna og jurta sem fela í sér fróðleik um framandi lönd. Þar verður boðið upp á afþreyingu í bland við upplifun af umhverfinu. Í Laufási verður hægt að finna sér stað undir trjákrónum til að vinna og halda fundi og í Hraunprýði verður aðstaða til að stunda jóga og hugleiðslu.

Jákvæð fordæmi eru til staðar, líka hérlendis

Við höfum skyld dæmi annars staðar að á landinu um vinsældir upplifunar á þessum nótum. Í Friðheimum í Reykholti hefur um nokkurra ára skeið verið fjölbreyttur rekstur í kringum matjurtarækt. Ferskar matjurtir af staðnum, veitingastaður, minjagripasala og ferðaþjónusta styðja þar hvert við annað með góðum árangri. ALDIN og Friðheimar eru að sjálfsögðu ekki að öllu leyti sambærileg fyrirbæri, en samanburðurinn gefur visst fordæmi.

ALDIN er fyrir alla, íbúa í næsta nágrenni, aðra borgarbúa og innlenda sem erlenda gesti. Reynslan og vísindin segja okkur að það er mikilvægt andlegri og líkamlegri heilsu fólks að komast reglulega í nánd við náttúruna. Það á ekki síður við um veturna íslensku, þegar skammdegið tekur sinn toll af andlegu heilbrigði margra. Að geta með auðveldum hætti komist í bjarta og hlýja gróðurvin mun hjálpa mörgum og létta lund.

Höfundur er sérhæfður í upplifunartengdri viðskiptaþróun og einn eigenda ALDIN Biodome.