ALDIN BIODOME


Heilsa okkar og vellíðan er hornsteinn alls í öllum samfélögum. Heimsfaraldur geisar nú sem mun hafa veruleg áhrif á öll hagkerfi heimsins. Það blasir við hversu háðar þjóðir eru hver annarri um vörur og þjónustu. Á sama tíma sýnir það sig að með því ‚að hægja‘ þá brýst blár himin fram úr mengunarhjúp undanfarinna ára í þeim borgum sem hafa þurft að hægja á, og áfram mætti telja sambærileg dæmi um að mengun sé á undanhaldi.

Heimskautaísinn bráðnar hratt

Sjaldan hefur mannkynið þurft að horfast í augu við annað eins. Lokanir á ýmis konar starfsemi og skólahaldi og meira að segja lokun á ferðir yfir landamæri. Í ljós kemur þörf fólks til að birgja sig upp af nauðsynjum. Við erum hjarðdýr, safnarar og veiðimenn. Á sama tíma berast fréttir af hröðustu bráðnun heimskautaíssins sem mælst hefur, sexfalt meirir bráðnun en undir lok síðustu aldar. En fréttin hverfur alfarið í umræðunni um heimsfaraldurinn.

Við erum að lifa á ótrúlega merkilegum tímum. Augljóslega er mannkynið ein fjölskylda í heimsfaraldri – veikindin fara ekki í manngreiningaálit eftir lit, trú, stétt eða stöðu – eins og hinn góðkunni leikari Tom Hanks benti á úr sinni sóttkví. Viðbrögð verða að vera samræmd og byggð á vísindum og samhæfingu til að skaðinn verði lágmarkaður.

Það er um leið fallegt og skelfilegt að sjá það kristallast svo skýrt hve flókin tengsl mannfólksins er á jörðinni. Og þá kemur einnig í ljós hverjir eru góðir leiðtogar.

Sem hjarðdýr elskum við að vera í hópum, ferðast um og upplifa – vera saman.

Sem safnarar viljum við eiga allt til öryggis, ef ske kynni að á þyrfti að halda.

Sem veiðimenn, sætum við lagi og ‚grípum gæsina þegar hún gefst’.

Sem aldrei fyrr finnum við hvernig sjálfbær samfélög gætu raunverulega virkað

Samfélög sem lokast núna af af völdum faraldsins, finna nú sem aldrei fyrr, hvernig sjálfbært samfélag raunverulega gæti virkað – að vera sér næg með nauðsynjar eins mikið og mögulegt er.

Í dag þarf hjarðdýrið ‚að upplifa‘; í eigin landi, í sinni borg, á sínum bæ – að minnsta kosti um tíma og í auknum mæli í framtíðinni. Nýta tæknina og hugvitið. Í dag þarf safnarinn að hugsa um hjörðina í stærri skala, söfnunin þarf – að nægja þegar á heildina er litið. Og veiðimaðurinn leitar á ný mið, í raun- og sýndarverualeika.

Umbylting í hugsunarhætti framundan

Það eina góða, og það mikilvægasta, sem gæti komið út úr krísunni sem gengur yfir er umbylting. Umbylting í hugsunarhætti – að opna huga og hjarta fyrir nýjungum, að leggja áherslu á samkennd og alþjóðlegt samstarf.

Heilsa og vellíðan heildarinnar er framtíðin og í heildinni er maðurinn hluti af vistkerfi jarðarinnar. Samfélgasþróun og uppbygging okkar tíma þarf að stuðla að minna vistspori mannsins þegar til lengri tíma er litið, fyrir alla hjörðina og jörðina.

Höfundur er stofnandi og framkvæmdastjóri ALDIN Biodome.

https://www.visir.is/g/202023830d