Skoðaðu hugmyndafræðina og stórkostlega staðsetningu ALDIN Biodome. Uppgötvaðu hvernig nýting jarðvarmans getur skapað magnaðar andstæður sem felast í upplifun af gróskumiklu, nærandi og fjölbreyttu umhverfi, hvenær sem er hér á Norðurslóðum.
Þetta myndband var framleitt af Spor í sandinn ehf., móðurfélagi ALDIN Biodome, með aðstoð útivistarsérfræðingsins og ljósmyndarans Sigurðar Bjarna Sveinssonar og WilkinsonEyre arkitekta, og var útbúið til að kynna ALDIN á MIPIM 2023.